Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

Mál nr. 052/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 52/2021

Miðvikudaginn 19. maí 2021

Dánarbú A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Anna Rut Kristjánsdóttir lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 30. janúar 2021, kærði B, f.h. dánarbús A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 17. nóvember 2020 þar sem umsókn um niðurfellingu ofgreiðslukröfu vegna endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2019 var synjað.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

A lést xx 2019. Á árinu 2019 fékk A tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. maí 2020, var kæranda tilkynnt að endurreikningur og uppgjör tekjutengdra greiðslna fyrir árið 2019 hafi leitt í ljós ofgreiðslu bóta að fjárhæð 262.002 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Með umsókn, dags. 7. október 2020, sótti kærandi um niðurfellingu á kröfu stofnunarinnar. Með bréfi Tryggingastofnun ríkisins, dags. 17. nóvember 2020, var umsókn um niðurfellingu ofgreiðslukröfu synjað á þeim grundvelli að krafan væri réttmæt.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 30. janúar 2021. Með bréfi, dags. 2. febrúar 2021, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 18. mars 2021, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. mars 2021. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru er farið fram á að kærð ákvörðun verði endurskoðuð og að ítarlegur rökstuðningur ásamt tilvísun í lög og reglugerðir fylgi úrskurðinum.

Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til þess sem fram kemur í umsókn um niðurfellingu ofgreiddra bóta til Tryggingastofnunar ríkisins. Í umsókninni er greint frá því að ástæða ofgreiðslunnar sé sú að A hafi skömmu fyrir andlát sitt hlotnast arfur sem skýri misræmi á milli tekjuáætlunar og fjármagnstekna í skattframtali vegna ársins 2019.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar kemur fram að kærð sé synjun stofnunarinnar á umsókn um niðurfellingu á ofgreiðslukröfu. Ofgreiðslukrafan sé tilkomin eftir endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins [2019].

Samkvæmt 1. og 2. mgr. 2. gr. laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl., taki dánarbú við andlát við öllum réttindum og skyldum látins einstaklings nema annað leiði af réttarreglum, löggerningi eða eðli þeirra réttinda eða skyldna sem um ræði. Þar á meðal falli kröfur hins látna á hendur þriðja manni og kröfur þriðja manns á hendur hinum látna. Ljúki dánarbúi með einkaskiptum hafi erfingjar tekið á sig sjálfskuldarábyrgð, in solidum, á öllum skuldbindingum sem kunni að hvíla á búinu, sbr. 28. gr. sömu laga. 

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem komi fram í skattframtölum.

Á skýran hátt sé tekið fram í lögum um almannatryggingar og reglugerð nr. 598/2009 að meginreglan sé sú að Tryggingastofnun skuli innheimta ofgreiddar bætur, sbr. 55. gr. laga um almannatryggingar, sem sé svohljóðandi: „Hafi Tryggingastofnun ríkisins eða umboð hennar eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin ofgreitt bótaþega bætur samkvæmt lögum þessum skal stofnunin draga ofgreiddar bætur frá bótum sem bótaþegi síðar kann að öðlast rétt til, sbr. þó 2. mgr. Einnig á Tryggingastofnun eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin endurkröfurétt á hendur bótaþega eða dánarbúi hans samkvæmt almennum reglum.“

Undantekningu frá þessari meginreglu sé að finna í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 varðandi þær kröfur sem myndist við uppgjör tekjutengdra bóta lífeyristrygginga. Þar segi: „Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn. Sama gildir um dánarbú eftir því sem við á.“

Á árinu 2019 hafi A fengið örorkulífeyri og tengdar greiðslur frá 1. janúar til xx. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast í uppgjöri á hendur kæranda sé sú að þegar samkeyrsla við tekjuupplýsingar af skattframtali 2020 vegna tekjuársins 2019 hafði farið fram, hafi komið í ljós að tekjur A hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafði gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum á skattframtölum bótaþega lögum samkvæmt.

A hafi sent inn tekjuáætlun þann 6. mars 2019 þar sem gert hafi verið ráð fyrir 400.000 kr. í vexti og verðbætur árið 2019. Ekki hafi verið gert ráð fyrir öðrum tekjum hjá honum. Gengið hafi verið út frá þessari tekjuáætlun þegar umsókn A um örorkulífeyri og tengdar greiðslur hafi verið samþykkt, sbr. bréf, dags. 3. apríl 2020. A hafi fengið greitt á grundvelli tekjuáætlunarinnar frá 1. janúar til xx 2019. A hafi látist xx 2019. Fyrir það tímabil sem hann hafði fengið greitt fyrir, þ.e. 1. janúar til xx 2019, hafði verið gert ráð fyrir í tekjuáætlun að hann hefði 166.665 kr. í vexti og verðbætur.

Við bótauppgjör ársins 2019 hafi komið í ljós að tekjur A hafi verið hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætluninni fyrir tímabilið 1. janúar til xx 2019. Tekjur A á tímabilinu hafi verið 790.524 í vexti og verðbætur. 

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2019 hafi verið sú að A hafi fengið greitt á árinu 1.175.762 kr. en hefði átt að fá 760.283 kr. A hafi því að hluta fengið ofgreitt í bótaflokkunum tekjutryggingu, sérstakri uppbót og orlofsuppbót. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 262.002 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Við afgreiðslu á beiðni um niðurfellingu vegna erfiðra fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna hafi, ásamt fyrirliggjandi gögnum, meðal annars verið skoðað ástæða ofgreiðslunnar, upplýsingar frá skattyfirvöldum um tekjur og eignir, að viðbættum þeim upplýsingum sem aflað hafi verið úr tölvukerfi stofnunarinnar um fjárhag og félagslega stöðu.

Í 55. gr. laga um almannatryggingar sé fjallað um innheimtu ofgreiddra bóta. Ákvæðið sé ekki heimildarákvæði um innheimtu heldur sé lögð sú skylda á Tryggingastofnun að innheimta ofgreiddar bætur. Ákvæði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 sé undanþáguheimild og sem slíkt skuli skýra það þröngt. Í þessu ákvæði felist að við ákvörðun um hvort fella eigi niður kröfu eigi að fara fram mat, annars vegar á fjárhagslegum og félagslegum aðstæðum umsækjanda, með tilliti til getu hans til að endurgreiða skuldina, og hins vegar á því hvort hann hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn þegar hann hafi tekið við hinum ofgreiddu bótum. Aðstæður þurfi að vera sérstakar svo að undanþáguheimild 11. gr. reglugerðarinnar eigi við.

Umrædd krafa hafi orðið til við endurreikning ársins 2019. Eins og meðfylgjandi gögn beri með sér, sé ljóst að röng tekjuáætlun hafi verið ástæða ofgreiðslunnar. Krafan sé réttmæt. Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs. Skilyrði reglugerðarinnar um góða trú verði að skoða í ljósi ábyrgðar lífeyrisþega á því að gefa réttar tekjuupplýsingar hverju sinni. Bótaþegi beri skýra ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur hans og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki. Þessi skylda bótaþega eigi ekki bara við þegar tekjuáætlun sé gerð heldur alltaf þegar einstaklingur fái bætur frá Tryggingastofnun.

Samráðsnefnd hafi metið fjárhagsaðstæður dánarbúsins á grundvelli upplýsinga sem Tryggingastofnun hafi aðgang að. Við skoðun þeirra hafi það verið mat nefndarinnar að ekki væri tilefni til að fella niður kröfuna. Einkum hafi verið horft til þess að eignir dánarbúsins hafi verið verulegar og einnig hafi verið horft til tekna kæranda á andlátsári.

Það hafi verið mat Tryggingastofnunar að fjárhags- og félagslegar aðstæður kæranda væru ekki nægilega sérstakar til að þær uppfylltu undanþáguákvæði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Í kæru sé gerð athugasemd við að arfur hafi haft áhrif á greiðslur. Arfur hafi ekki áhrif á réttindi lífeyrisþega hjá Tryggingstofnun. Einungis þær tekjur sem falli undir þau ákvæði laga um tekjuskatt, sem vísað sé til í lögum um almannatryggingar, hafi áhrif á greiðslurétt hjá Tryggingastofnun. Aftur á móti geti til dæmis fjármagnstekjur sem séu tilkomnar vegna eigna, sem fengnar hafi verið í arf, haft áhrif á greiðslur. Tryggingastofnun hafi engar upplýsingar um að svo sé í þessu máli. Hafi einhverjar tekjur verið ranglega skráðar sem tekjur A í skattframtali sem ættu með réttu að vera skráðar sem arfur, þurfi að leiðrétta það hjá Skattinum.

Rétt sé einnig að taka fram að þær fjármagnstekjur, sem hafi áhrif á rétt kæranda hjá Tryggingastofnun, séu taldar hafa komið fram á meðan A hafi verið á lífi og hafi þær verið skattlagðar í samræmi við það. Ef talið sé að fjármagnstekjur hafi komið til eftir dánardag A og tilheyri dánarbúinu, hafi erfingjum verið bent á að sækja um endurupptöku á skattframtali hjá skattyfirvöldum, sbr. bréf, dags. 17. nóvember 2020, og fara fram á að fjármagnstekjurnar verði færðar yfir á réttan aðila. Sú aðgerð muni lækka ofgreiðslukröfu Tryggingastofnunar á hendur dánarbúinu. Innheimtu krafna vegna viðkomandi ára verði frestað ef lögð verði fram staðfesting frá Skattinum á því að óskað hafi verið eftir endurupptöku á skattframtali.

Tryggingastofnun hafi skoðað gögn málsins en telji ekki ástæðu til þess að breyta kærðri ákvörðun.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um synjun á beiðni kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta.

Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er greiðsluþega skylt að veita Tryggingastofnun þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru svo að unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Þá er honum einnig skylt að tilkynna um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á bætur eða greiðslur. Tryggingastofnun er heimilt, að fengnu samþykki viðkomandi, að afla nauðsynlegra upplýsinga um tekjur umsækjanda og greiðsluþega hjá skattyfirvöldum og fleirum, sbr. 40. gr. laga um almannatryggingar.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 7. mgr. 16. gr. laganna segir að eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna samkvæmt greininni. Í 1. málsl. a-lið 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar er fjallað um tengingu fjármagnstekna við bætur almannatrygginga.

A fékk greiddan örorkulífeyri og tengdar greiðslur fyrstu X mánuði ársins 2019. Tryggingastofnun tilkynnti dánarbúinu um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum greiðslum ársins 2019 með bréfi, dags. 22. maí 2020. Niðurstaða endurreikningsins var sú að bætur hefðu verið ofgreiddar, samtals að fjárhæð 262.002 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu skatta. Af gögnum málsins verður ráðið að endurgreiðslukröfuna megi rekja til vanáætlaðra fjármagnstekna í tekjuáætlun ársins 2019.

Tryggingastofnun ber lögum samkvæmt að endurreikna bótafjárhæðir bótagreiðsluárs eftir að álagning skattyfirvalda á opinberum gjöldum hefur farið fram, sbr. fyrrgreinda 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Þá er meginreglan sú að stofnuninni beri að innheimta ofgreiddar bætur, sbr. 55. gr. laganna. Í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags er hins vegar að finna heimild til undanþágu frá endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta. Ákvæðið hljóðar svo:

„Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn. Sama gildir um dánarbú eftir því sem við á.“

Framangreind 11. gr. reglugerðarinnar heimilar undanþágu frá endurgreiðslukröfu, að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Aðstæður verða að vera sérstakar. Við mat á því hvort aðstæður séu sérstakar skal einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort bótaþegi hafi verið í góðri trú þegar hann tók við hinum ofgreiddu bótum. Tryggingastofnun ríkisins hefur hafnað því að heimild tilvitnaðs reglugerðarákvæðis eigi við í tilviki kæranda.

Í máli þessu lýtur kæra að synjun Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni kæranda um niðurfellingu endurgreiðslukröfu sem hafði myndast vegna ofgreiddra bóta ársins 2019.

Úrskurðarnefnd velferðarmála lítur til þess við úrlausn þessa máls að greiðslur örorkulífeyris og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins sæta tekjuskerðingu og eru bótaþegar upplýstir um tekjutenginguna við upphaf lífeyristöku. Þá er bótaþegum gert að upplýsa um tekjur sínar á bótagreiðsluári í tekjuáætlun hvers árs. Eins og áður greinir gerir 39. gr. laga um almannatryggingar ráð fyrir að það komi í hlut þess aðila, sem þiggur bætur frá Tryggingastofnun, að upplýsa réttilega um tekjur sem kunna að falla til á bótagreiðsluári. Þannig hvílir sú ábyrgð á bótaþega að tekjuáætlun sé rétt. Byggt er á því í kæru að kröfuna megi rekja til arfs sem A hafi hlotnast skömmu fyrir andlát sitt og að arfur eigi ekki að teljast honum til tekna. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur ekki tilefni til að rengja þá málsástæðu að A hafi hlotnast arfur en samkvæmt gögnum málsins voru fjármagnstekjur ástæða framangreindrar ofgreiðslu og þær koma fram á skattframtali A vegna tekjuársins 2019. Ekkert liggur fyrir meðal gagna málsins um hvort þær fjármagnstekjur voru tilkomnar vegna arfs A en ef svo er, telur úrskurðarnefndin vísbendingar vera um að A hafi verið í góðri trú í skilningi 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála leiðir það eitt og sér aftur á móti ekki sjálfkrafa til þess að krafan sé felld niður heldur þurfi að meta aðstæður kæranda heildstætt með hliðsjón af öllum þeim atriðum sem tilgreind eru í 11. gr. reglugerðarinnar.

Kemur þá til skoðunar hvort fjárhagslegar og félagslegar aðstæður kæranda gefi tilefni til niðurfellingar. Af gögnum málsins verður ráðið að dánarbúið sé skuldlaust og að nægar eignir hafi verið til staðar til þess að greiða skuldina. Úrskurðarnefndin lítur til þess að samkvæmt meginreglu 55. gr. laga um almannatryggingar skal Tryggingastofnun innheimta ofgreiddar bætur og ber að túlka undantekningu frá þeirri meginreglu þröngt samkvæmt almennum lögskýringarreglum. Að framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að ekki sé tilefni til niðurfellingar endurgreiðslukröfunnar, þrátt fyrir að A hafi hugsanlega verið í góðri trú. Úrskurðarnefndin telur ekki tilefni til að rannsaka hugsanlega góða trú nánar þar sem aðrar aðstæður í málinu gefa ekki tilefni til niðurfellingar.

Úrskurðarnefndin vill vekja athygli kæranda á þeim leiðbeiningum sem Tryggingastofnun veitti með bréfi, dags. 17. nóvember 2020, um að hægt væri að kanna hvort umræddar fjármagnstekjur hafi komið til eftir dánardag A og tilheyri þar af leiðindi dánarbúinu. Ef svo er, sé hægt að sækja um endurupptöku á skattframtali hjá Skattinum og fara fram á að fjármagnstekjurnar verði færðar yfir á réttan aðila. Sú aðgerð muni lækka ofgreiðslukröfu Tryggingastofnunar á hendur dánarbúinu.

Með hliðsjón af framangreindu er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn dánarbús A, um niðurfellingu ofgreiðslukröfu, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum